#19 Ingeborg Andersen, grasalæknir: "Konur verða viskuberar"

Að finna taktinn: Breytingaskeiðið - Podcast tekijän mukaan Podcaststöðin

Að þessu sinni kom til mín Ingeborg Andersen, grasalæknir. Hún er ung að árum og gefur sig ekki út fyrir að vera vera sérfræðingur í breytingaskeiðinu, en hún hefur haft alveg sérstakan áhuga og þar af leiðandi þekkingu á hormónakerfi kvenna. Forvitnin hefur drifið hana áfram í að afla sér upplýsinga og kynna sér til hlýtar hvaða áhrif hormón hafa á konur. Hún nálgast konur með því að fræða þær þannig að þær þekki líkama sinn og læri að heyra í honum og skilja hann til þess að geta mætt honum. Að venju töluðum við um allskonar, meðal annars um hvernig samfélagið myndi vera uppbyggt ef það væri að mæta þörfum kvenna út frá tíðarhring okkar. En það er nú byggt upp út frá þörfum karla þar sem hringurinn þeirra er aðeins sólarhrings á meðan kvenna er um það bil mánuður. Þá setti Ingeborg breytingaskeiðið í skemmtilegt samhengi þess að þegar að konur eru ekki lengur að bera börn verða þær viskuberar og fá þannig nýtt hlutvert í samfélagi okkar. Þetta er tíminn til þess að hægja á og einfalda lífið, að vinna með sköpunarkraftinn frekar en að vera á hamsturshjólið og endurhugsa við hvað við erum að eltast.  Xeno estrogen - gervi estrogenið sem Ingeborg talaði um að væri hægt að googla til að átta sig betur á hvar það er í umhverfi okkar. Instagram reikningurinn sem Nærðar konur eru með má finna hér. https://www.instagram.com/naerdarkonur/