Ef ég nenni

Andvarpið - hlaðvarp foreldra - Podcast tekijän mukaan Andvarpið

Hver ætlar að borða hrekkjavökuhúsið hennar Emmu og nennir Helgi Björns ekki neinu? Hvor okkar er að vinna aðventu keppnina og er Mæja alveg að klúðra þessu? Okkar skilaboð á aðventunni eru þessi: Borðið bara smákökudeig ef þið nennið ekki að baka það og slökkvið svo bara ljósin og kveikið á kertum og ekki skúra veggina. Eins  þökkum við fyrsta pabbanum fyrir spjallið í Andvarpinu en hann varð fyrir því á dögunum að týna tveimur uppkomnum börnum en finna þau skömmu síðar með aðstoð Íslendingabókar. Hugljúf og dálítið dramatísk aðventu frásögn sem kennir okkur að vera góð við börnin okkar og njóta þeirra meðan þið eigið eitthvað í þeim.