Íslamska ríkið II
Í ljósi sögunnar - Podcast tekijän mukaan RÚV - Perjantaisin

Kategoriat:
Síðari þáttur af tveimur um sögu hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki, hafa á síðustu árum lagt undir sig landsvæði í Írak og Sýrlandi og staðið á bak við ótal hryðjuverk um heim allan. Í þessum síðari þætti er fjallað um það hvernig hópur hryðjuverkamanna í Írak notfærði sér upplausnina í grannríkinu Sýrlandi til að kveða sér hljóðs, og uppgang núverandi leiðtoga samtakanna, Abu Bakr Al-Baghdadi, sem útnefnt hefur sjálfan sig arftaka Múhameðs spámanns á jörðu.