Nauðungarflutningarnir á Krímtatörum
Í ljósi sögunnar - Podcast tekijän mukaan RÚV - Perjantaisin

Kategoriat:
Í þættinum er fjallað um sögulegan bakgrunn sigurlags Úkraínu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í fyrra, nauðungarflutningana á Krímtatörum árið 1944. Þá sakaði Jósef Stalín Tatara á Krímskaga um landráð og svik og lét því flytja alla þjóðina, nærri tvö hundruð þúsund manns, til Úsbekistan um borð í gripalestum. Þar beið þeirra vist í fangabúðum, og talið að allt að fjörutíu prósent krímtatörsku þjóðarinnar hafi týnt lífi á fyrstu árunum eftir flutninginn. Þátturinn var áður á dagskrá í maí í fyrra.