Port Arthur-fjöldamorðin og skotvopn í Ástralíu
Í ljósi sögunnar - Podcast tekijän mukaan RÚV - Perjantaisin

Kategoriat:
Í þættinum er fjallað um fjöldamorðin í Port Arthur í Ástralíu árið 1996, þegar ungur maður myrti 35 og særði fjölda manns í mannskæðustu skotárás í ástralskri sögu. Morðin urðu til þess að áströlsk stjórnvöld settu stranga skotvopnalöggjöf og gerðu hundruð þúsunda öflugra skotvopna upptæk, aðgerðir sem stundum eru nefndar sem möguleg fyrirmynd að herðingu skotvopnalaga í Bandaríkjunum. Þátturinn var áður á dagskrá í júní 2016.