Umsátrið í Waco
Í ljósi sögunnar - Podcast tekijän mukaan RÚV - Perjantaisin

Kategoriat:
28. febrúar 1993 ætluðu útsendarar Áfengis-, tóbaks- og skotvopnaeftirlits Bandaríkjanna að kanna grunsemdir um að liðsmenn fámenns kristins trúarsafnaðar, sem hélt til á búgarði fyrir utan borgina Waco í Texas, hefðu ólögleg skotvopn undir höndum. Aðgerðin endaði með skotbardaga og blóðbaði. Umsátur bandarísku alríkislögreglunnar um búgarðinn átti svo eftir að standa í fimmtíu daga.